Gítarnám með Jamorama?

September 14th, 2011 Helgi No comments

Hvers vegna gítarnám með Jamorama. Því Jamorama er öðruvísi.

1) Þetta er vinsælasta síðan á netinu sem hefur kennt þúsundum að spila á gítar.
2) Þetta hentar bæði byrjendum sem og lengra komnum.
3) Þú getur niðurhalað kennsluefninu á nokkrum mínútum inn á tölvuna þína.
4) Þú þarft ekki að kunna neitt á gítar – því Jamorama getur kennt þér það.
5) Þetta er mun ódýrara heldur enn að fara í kennslu hjá gítarkennara út í bæ.
6) Mælum með að þú heimsækir heimasíðuna hjá Jamorama. Þar er alltaf opið.

Það er alveg á hreinu að Jamorama getur sparað þér tugi þúsunda að læra á gítar.

Smelltu hérna og sjáðu með þínum eigin augum það kostar ekkert að skoða.

Categories: Afhverju Jamorama Tags:

Jamorama gítar kennsla sem er algjör snilld!

December 22nd, 2010 Helgi No comments

Helgi hérna, ég er alveg í skýjunum! Og það er ekki bara út af jólunum heldur vegna þess ég fékk mitt fyrsta gítar gigg :) WahhhhhhhhhhhhHoooooooo er ekkert smá ánægður með það!

Þetta er fáránleg tilfinning! Þannig er ég hef verið að læra á gítar smátt og smátt enn í Ágúst á þessu ári fann ég Jamorama gítar námskeiðið sem hefur hjálpað mér alveg ótrúlega mikið. Ef þú ert byrjandi eða lengra kominn þá mæli ég hiklaust með að þú skoðir Jamorama heimasíðuna.

Fyrsta giggið sem ég fékk verður hjá stelpu sem er að fara halda upp á afmælið sitt og hún ætlar að borga mér heilar 10.000,- krónur fyrir :) (Ég er að rifna úr stolti!)

Jæja best að láta þetta duga í bili enn takk kærlega fyrir að lesa bloggið mitt og Gleðileg Jól :)

Categories: Heim Tags:

Gítarkennsla

September 26th, 2010 Helgi No comments

Þú ert hérna því þig langar að læra á gítar. Ekki satt?

En hvað kostar að læra á gítar hjá kennara? 40 mínútur eru á bilinu 3500,- krónur og upp úr. Það er misjafnt hversu marga tíma þú þarft.

Ef þú ert byrjandi. Þá mæli ég með að þú skoðir Jamorama gítar námskeiðið áður en þú kaupir þér tíma hjá gítar kennara, það kostar ekki neitt að skoða þetta.

Þetta virkar eins og gítar fjarnám. Þetta er fáránlega sniðugt. Ég persónulega ætlaði mér að læra á gítar hjá kennara en þegar ég fann Jamorama snérist mér hugur.

Endilega lestu þér vel til á síðunni minni og vonandi mun þetta hafa hjálpað þér eitthvað :)

- Helgi

Categories: Heim Tags:

Sagan mín hvernig ég lærði á gítar

August 24th, 2010 Helgi No comments

Hvers vegna er ég að skrifa þetta? Í raun til þess að hjálpa öðrum sem vilja læra á gítar, það er margt um að velja en mér fannst persónulega Jamorama henta mér best því ég var bara byrjandi en um leið líka vegna þess þeir hafa svo margt annað að bjóða sem getur hjálpað manni þegar maður er lengra kominn.

Vinsamlegast athugaðu þetta er mín saga og mín gagngrýni um Jamorama gítar námskeiðið. Þú getur farið inn á vefinn þeirra með því að smella hérna.

Ég ætla ekki að fela neitt, þannig ég ætla mér að fjalla bæði um góðu hliðarnar og það sem mér fannst að gæti farið betur hjá þeim.

Slæmu punktarnir

Þetta námskeið er kennt á ensku, sumum finnst þetta vera galli, öðrum ekki. En það hjálpar að hafa myndband til þess að styðja sig við, margir læra betur þannig heldur en bara upp úr bókinni, gott er einnig að hafa 500mb + laust pláss á tölvunni fyrir kennslu efnið og svo er það forritið það getur hægt á hægvirkum tölvum enn þetta reddaðist samt allt saman hjá mér á endanum.

Hverjir eru svo góðu punktarnir?

Góðu punktarnir eru fjölmargir, þeir sem eru byrjendur hefja strax ferðalagið að læra að spila á gítarinn, þú færð kynningu um gítarinn, hvernig þú átt að halda á honum og um leið hvernig þú átt að glamra á hann, það tekur byrjanda aðeins nokkrar vikur að sjá árangur, sjálfur æfði ég mig reglulega eða 30-40 mín á dag og eftir rúmlega þrjár vikur varð ég orðinn pínu montinn af sjálfum mér :)

Ég verð að taka það fram að þetta námskeið er byggt upp á skemmtilegan hátt, þannig það er frekar erfitt að hætta bara og gefast upp og það sem mér sjálfum fannst mikill kostur var sá að maður gat lesið og um leið horft á hvernig þetta er gert sem mér fannst vera mikill kostur við þetta því þannig læri ég best.

Loka orðin mín

Ef þig langar að læra á kassagítar eða rafmagnsgítar þá skal ég lofa þér einu þú verður alls ekki svikinn af þessu, þetta er eitt það besta gítar námskeið sem völ er á og það besta við þetta allt saman er þú greiðir aðeins brot af því sem þú þyrftir að greiða hjá lærðum gítarkennara.

Mín einkunn er eftirfarandi:

Einfalt í notkun

9.5/10

Gæði upplýsinga

9.0/10

Virði fyrir peninginn

9.6/10

Smelltu hér til þess að heimsækja Jamorama opinberlegu vefsíðuna þeirra.

Helgi

P.S. Ég gleymdi næstum því að segja þér, ef þú ert að spila í hljómsveit eða solo, mæli ég með því að þú fáir þér Deluxe útgáfuna, þó hún kosti aðeins meira, þá er það þess virði. En ef þú ert byrjandi þá er Standard útgáfan meira en nóg fyrir þig, takk fyrir og góða skemmtun!

Categories: Gítar sagan mín Tags:

Ráð handa byrjendum

August 18th, 2010 Helgi No comments

Það eru margar gítar síður á netinu sem halda því fram að þú getur orðið snillingur á gítar á aðeins nokkrum dögum, jafnvel vikum en sannleikurinn er sá eins og í öllu öðru sem þú vilt læra, taka þér fyrir hendur, þá tekur allt sinn tíma og á endanum mun æfingin skapa meistarann.

Það má í raun líkja þessu við þegar þú lærðir fyrst að hjóla, þú dast oft af hjólinu en ákvaðst að halda áfram, þangað til þú myndir ná þessu, það er sama og að læra á gítar þetta mun taka tíma en ef þú ert þolinmóð/ur þá tekst þér þetta og ef þú hefur mikinn áhuga á gítar þá verður þetta aðeins auðveldara fyrir þig, þannig virkar það bara.

Segjum að þig langi að læra að spila á gítar aðeins nokkur lög, þá skaltu hafa það í huga að þú þarft alltaf að leggja þig fram, það fyrsta eru styrktar æfingar en þær eru alltaf grunnurinn að góðum árangri og þetta hefst oftast með því að læra á kassagítar fyrst, þannig færðu styrkinn fram.

Flestir sem læra að spila á gítar finnst oftast baugfingurinn eða litli fingur sem reynir hvað mest á, þannig það skiptir miklu máli að fara rólega í þetta annars er hætta á að fingurnir á þér geta skemmst, það hefur oftar en einu sinni komið fyrir, mundu bara að halda ró þinni, engan asa, það er óþarfi að flýta sér, reyndu að slaka á, það er einn lykilinn af nokkrum að verða góður á gítarinn.

Góð æfing fyrir byrjendur er að byrja á 6 streng og spila síðan 1 2 3 4 (band), færa sig svo niður á næsta streng og spila 1 2 3 4 (band) þangað til þú ert kominn á fyrsta strenginn, fara svo aftur til baka, síðan þegar þú ert kominn á streng 6, þá færir þú æfinguna á 2 (annað band) og spilar 2 3 4 5 (band) og svo ferðu á fimmta strenginn sama og niður og svo upp aftur, síðan er gott að hafa í huga að færa æfinguna alltaf niður um eitt (band) þangað til þú ert kominn að 12 (tólfta), bandi og þegar þú ert að pikka skaltu alltaf fara upp og niður, þetta virkar flókið en þetta er alls ekki eins flókið og þetta lítur út fyrir að vera. En vonandi mun þetta hjálpa þér eitthvað.

Þessi póstur datt inn hjá mér einfaldlega vegna þess, mér fannst ég þurfa að gefa byrjendum sem hafa áhuga að læra á gítar, nokkur ráð, áður en ég myndi fjalla um námskeiðið sem varð til þess að ég fór að læra á gítar og geta spilað á gítarinn, þannig næsti póstur sem ég skrifa hérna verður um gítar námskeiðið. En þangað til njóttu lífsins og skemmtu þér.

Helgi

Categories: Gítar ráð Tags:

Gítar kennsla á netinu?

August 17th, 2010 Helgi No comments

Hæ og velkomin á vefsíðuna mína Gitarkennsla.com

Þannig er mér fannst dýrt að fara á gítarnámskeið og læra á gítar, hvað þá að fara til kennara og fá sérkennslu sem varð til þess að ég ákvað að búa til þennan vef til þess að hjálpa öðrum.

Ég var mjög nálægt því á tímabili að hætta við að læra á gítar, fannst gítar kennsla of dýr. Enn svo datt mér í hug eitt kvöldið að leita á netinu, athuga hvort það væri námskeið í boði þar sem gæti hentað mér, var samt ekki að búast við miklu en mig óraði aldrei fyrir því að ég myndi finna gítar námskeið sem ég var bæði sáttur og ánægður með og núna er svo komið að mig langar að deila sögunni með ykkur ásamt því að segja ykkur nánar frá gítar námskeiðinu sem hjálpaði mér.

Jæja þetta er komið gott í bili, konan er farinn að kalla á mig… En ég mun skrifa hérna fljótlega aftur, þannig endilega láttu sjá þig aftur hérna.

Kveðja, Helgi.